Ólína Þorvarðardóttir
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir (fædd 8. september 1958) er íslenskur rithöfundur, fræðimaður og stjórnmálamaður. Hún sat á Alþingi 2009-2013 og 2015-2016 fyrir Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi. Forseti Vestnorræna ráðsins 2010, varaforseti Norðurlandaráðs 2015. Borgarfulltrúi í Reykjavík 1990-1994. Sem stjórnmálamaður beitti hún sér fyrir breytingum á íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu samhliða umhverfismálum og velferðarmálum, og var á sama tíma virk í norrænu samstarfi. Sem fræðimaður hefur hún einkum helgað sig þjóðfræðirannsóknum, ekki síst á galdramálum 17. aldar sem doktorsritgerð hennar fjallar um. ÆviágripFædd í Reykjavík 8. september 1958 og alin þar upp til 14 ára aldurs er hún flutti með foreldrum sínum til Ísafjarðar og fór þar í Menntaskólann á Ísafirði þaðan sem hún útskrifaðist með stúdentspróf 1979. Hún hóf nám í íslensku og heimspeki við Háskóla Íslands 1980 og sérhæfði sig síðar í þjóðfræði. Var um tíma gestarannsakandi við þjóðfræðideild Kaupmannahafnarháskóla. Lauk doktorsprófi frá Heimspekideild Háskóla Íslands árið 2000. Ólína var þekktur sjónvarps- og blaðamaður áður en hún hóf afskipti af stjórnmálum. Hún leiddi lista óháðs framboðs Nýs vettvangs[1] fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík 1990 og sat í Borgarstjórn Reykjavíkur til ársins 1994, þar af sem borgarráðsmaður 1992-1994. Á þeim vettvangi beitti hún sér einkum í velferðar, skipulags og samgöngumálum Reykjavíkurborgar. Í stjórn Dagvistar barna 1990–1994. Í stjórn Strætisvagna Reykjavíkur 1994–1998.
StörfÓlína hefur gegnt fjölmörgum félags- og trúnaðarstörfum í ýmsum nefndum og ráðum. Hún hefur skrifað fjölda fræðigreina auk skrifa um þjóðfélagsmál í blöð, bækur, tímarit og á vefsíður.[2] Starfsferill
Þingnefndir
Eldri nefndir
Önnur félags og trúnaðarstörfFormaður Óðfræðifélagsins Sónar 2018-2020. Formaður Vestfjarða-akademíunnar 2005–2008. Formaður stjórnar Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða 2001–2006. Varaformaður Menningarráðs Vestfjarða frá 2007. Formaður Íbúasamtaka Vesturbæjar 1998–2000. Varaformaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar 1996–1998. Í stjórn Neytendafélags höfuðborgarsvæðisins 1995–1996. Viðurkenningar2007: Viðurkenning Nýsköpunarmiðstöðvarinnar Impru f. viðskiptahugmyndina Spánverjavígin 1615: Sögusafn og söguslóð 2008 Verðlaun í hugmyndasamkeppninni Upp úr skúffunum fyrir viðskiptahugmyndina Spánverjavígin 1615: Sögusafn og söguslóð 1995 Verðlaun í ljóðasamkeppni Listahátíðar Reykjavíkur. 1991 Folklore Fellow (associate member of The Folklore Fellows, an international network of folklorists, instituted by the Finnish Academy of Science and letters, Helsinki) Menntun
Bækur
Tilvísanir
|