Aleksej Rykov
Aleksej Ívanovítsj Rykov (25. feb. 1881 - 14. mars 1938) var rússneskur bolsévískur byltingarmaður sem varð þýðingamikil fígúra í augum Sovétmanna og einn af megin keppinautum Jósef Stalíns. Rykov var innanríkisráðherra í fyrstu stjórn bolsévika og síðan formaður þjóðfulltrúaráðsins, eða forsætisráðherra, frá dauða Vladímírs Lenín árið 1924 til ársins 1930. Hann féll í ónáð eftir að hann mótmælti fyrirætlunum Stalíns um að samyrkjuvæða landbúnað Sovétríkjanna með valdi og var síðan rekinn úr Kommúnistaflokknum árið 1937.[1] Rykov var meðal sakborninga í Moskvuréttarhöldunum árið 1938, þar sem pólitískir andstæðingar Stalíns voru sakaðir um ýmsa glæpi og dæmdir til dauða. Rykov var tekinn af lífi af skotsveit ásamt öðrum sakborningum.[2] Árið 1988 viðurkenndu sovésk stjórnvöld opinberlega að Rykov og hinir sakborningarnir hefðu verið saklausir og veittu þeim uppreisn æru.[1] Tilvísanir
|