Sir Elton Hercules John (f. Reginald Kenneth Dwight; 25. mars 1947) er enskurtónlistarmaður, píanóleikari og lagahöfundur. John braust fram á sjónarsviðið á 8. áratugnum og átti farsælt samstarf við lagahöfundinn Bernie Taupin. John er einn farsælasti sólólistamaður allra tíma. Lífi hans var gert skil í kvikmyndinni Rocketman (2019).
Árið 2000 spilaði Elton John á Laugardalsvelli[1] fyrir um 10.000 manns. Hann kom aftur árið 2007 og spilaði í einkaveislu Ólafs Ólafssonar, kenndan við Samskip. [2]
Elton ákvað að fara í kveðjutónleikatúr frá 2018–2021, en hann frestaðist vegna Covid-19. John spilaði sína síðustu tónleika árið 2023.[3] John spilaði sína síðustu tónleika í Stokkhólmi 8. júlí 2023. Hann var virkur tónlistarmaður í 61 ár, og gaf út 31 breiðskífur.
John var stjórnarmaður í knattspyrnufélaginu Watford FC um nokkra hríð.
Útgefið efni
Breiðskífur
Empty Sky (1969)
Elton John (1970)
Tumbleweed Connection (1970)
Madman across the Water (1971)
Honky Chateau (1972)
Don't shoot me, I'm only the Piano Player (1973)
Goodbye Yellow Brick Road (1973)
Caribou (1974)
Captain Fantastic and the Brown Dirt Cowboy (1975)