Fjallafura
Fjallafura (fræðiheiti Pinus mugo) er furutegund sem vex í hátt til fjalla í Evrópu og finnst í Pýreneafjöllum, Ölpunum, Erzgebirge, Karpatafjöllum, norður Apennínafjöllum og fjöllum á Balkanskaga í 1000 m til 2200 m hæð en sums staðar í 200 m hæð í Þýskalandi og Póllandi og upp í allt að 2700 m í suðurhluta Búlgaríu og í Pýrenaafjöllum. Það eru tvær undirtegundir:
Fjallafura/bergfura er mjög vindþolin, ljóselsk og hægvaxta[1]. Bergfura er mikið notuð í görðum, sérstaklega lágvaxna afbrigðið subsp. mugo. Hún myndar blendinginn P. × rhaetica með skógarfuru þar sem þær vaxa saman. P. mugo er talið til ágengrar tegundar á hálendi Nýja Sjálands. Á ÍslandiBergfura/fjallafura hefur verið ræktuð á Íslandi síðan í kringum 1900. En á árunum 1899-1913 var hún gróðursett í reiti á Þingvöllum og á Grund í Eyjafirði [2]. Bergfura verður allt að 10-15 metra há hérlendis.[3] Hún vex víða um land, kelur sjaldan en getur verið viðkvæm fyrir sveppasjúkdómnum (furubikar). [4] Svipmyndir
Tenglar
Tilvísanir
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Fjallafura. Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist fjallafuru. Wikilífverur eru með efni sem tengist fjallafuru. |