FullaFulla er ásynja í norrænni goðafræði. Hún er talin meðal fylgikvenna Friggjar. Hún er sögð bera eski Friggjar, en eski getur bæði þýtt „askja“ og „spjót“. Hvort tveggja hefði á þessum tíma verið gert úr eskivið.[1] Ritaðar heimildir um FulluÍ upptalningu á ásynjum í Gylfaginningu er sagt um Fullu:
Aftur er minnst stuttlega á Fullu í frásögn Gylfaginningar af dauða Baldurs. Þegar Hermóður hinn hvati heldur til Heljar til þess að vitja Baldurs færir Baldur honum ýmsar gjafir til að gefa goðunum í Ásgarði. Meðal gjafanna sem Baldur sendir heim er fingurgull handa Fullu.[2] Fulla birtist í aukahlutverki í kvæðinu Grímnismálum í Sæmundareddu. Í kvæðinu gerir Frigg veðmál við eiginmann sinn, Óðin, um að fóstri hans, konungurinn Geirröður, sýni gestum sínum ekki tilhlýðilega gestrisni. Frigg sendir þá Fullu til Geirröðar á undan Óðni með skilaboð til að vara hann við komu „fjölkunnugs manns“ og segir honum hvernig hann geti borið kennsl á hann:
Í Skáldskaparmálum er Fulla nefnd meðal átta ásynja sem sækja veislu hjá jötninum Ægi í Hlésey. „Höfuðband Fullu“ er jafnframt ein af skáldskaparkenningunum fyrir gull sem kvæðið telur upp. Minnst er á Fullu í annarri af tveimur særingaþulum frá 10. öld sem fundust í handriti í Merseburg í Þýskalandi árið 1841. Í særingarþulunni er Fulla (eða „Volla“) ein af þeim sem fara með galdur til að lækna hest Baldurs eftir að hann tognar á hæl þegar þeir Óðinn ríða í gegnum skóg. Í kvæðinu er Fulla sögð systir Friggjar fremur en að vera einfaldlega í þjónustu hennar.[4] Tilvísanir
|