HljóðvarpHljóðvarp (skammstafað sem hljv.) kallast það þegar sérhljóð í áhersluatkvæði breytist fyrir áhrif annars sérhljóðs sem kallast hljóðvarpsvaldur. Í íslensku hafa a-hljóðvarp, u-hljóðvarp og i-hljóðvarp öll verið virk á einhverjum tímapunkti. Tegundir hljóðvarpaA-hljóðvarpA-hljóðvarpið er elsta hljóðvarpið sem til er og það kemur mjög sjaldan fram í íslensku. Í a-hljóðvarpi verður sérhljóðinn i að e. Hér er hljóðvarpsvaldurinn a. Stafurinn a togar í rótarsérhljóðið i og færir það svo það er nær myndunarstað a-hljóðsins og breytir því i í e. Dæmi
U-hljóðvarpU-hljóðvarp er mjög algengt hljóðvarp í íslensku. Í því verður hljóðið a að hljóðinu ö eða u. Áður fyrr verkaði u-hljóðvarpið einnig þannig að i varð að y. a > ö a > u Dæmi
I-hljóðvarpI-hljóðvarp er algengasta hljóðvarpið í íslensku. Hljóðvarpsvaldurinn er i en i hverfur eftir að hafa fært rótarhljóðið nær myndunarstað sínum. Tegundir:
Dæmi
Tengt efni |