Ion Iliescu
Ion Iliescu (fæddur 3. mars 1930) er rúmenskur stjórnmálamaður. Hann var forseti Rúmeníu í tvígang, fyrst frá 1989 til 1996 í kjölfar rúmensku byltingarinnar og síðan í annað kjörtímabil frá 2000 til 2004. Iliescu er fyrrum meðlimur í Kommúnistaflokki Rúmeníu og gegndi ýmsum embættum í kommúnistastjórn landsins á valdatíð Nicolae Ceaușescu. Iliescu var á tímabili álitinn mögulegur eftirmaður Ceaușescu sem leiðtogi kommúnistastjórnarinnar en hann féll síðar í ónáð hjá stjórninni.[1] Hann náði að hreppa völdin þegar Ceaușescu var steypt af stóli árið 1989 og varð fyrsti forseti Rúmeníu eftir kommúnistatímann.[2] Iliescu tapaði endurkjöri á móti Emil Constantinescu í forsetakosningum árið 1996.[3] Iliescu komst aftur til valda eftir kosningar árið 2000 og sat sem forseti til ársins 2004.[4] Hlutverk Iliescu í eftirleik byltingarinnar 1989 hefur verið umdeilt í seinni tíð. Árið 2019 ákærði ríkissaksóknari Rúmeníu Iliescu fyrir glæpi gegn mannúð og sakaði hann um að hafa nýtt sér ríkisfjölmiðla landsins til að dreifa vísvitandi röngum upplýsingum og vekja ótta við hryðjuverk. Þannig hefði hann verið valdur að „frændvígum, stjórnlausri skothríð og misvísandi hernaðarfyrirmælum,“ en í upplausnarástandi sem ríkti fyrstu fimm dagana eftir valdatöku Iliescu árið 1989 voru 862 manneskjur drepnar og þúsundir særðust.[4] Árið 2020 hafnaði dómari ákærunni gegn Iliescu vegna formgalla.[5][6] Tilvísanir
Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
|