Share to:

 

Jóhann Hafstein

Jóhann Hafstein
Forsætisráðherra Íslands
Í embætti
10. júlí 1970 – 14. júlí 1971
ForsetiKristján Eldjárn
ForveriBjarni Benediktsson
EftirmaðurÓlafur Jóhannesson
Iðnaðarráðherra
Í embætti
14. september 1961 – 31. desember 1961
ForsætisráðherraÓlafur Thors
ForveriBjarni Benediktsson
EftirmaðurBjarni Benediktsson
Í embætti
14. nóvember 1963 – 14. júlí 1971
ForsætisráðherraBjarni Benediktsson
Hann sjálfur
ForveriBjarni Benediktsson
EftirmaðurMagnús Kjartansson
Dóms- og kirkjumálaráðherra
Í embætti
14. september 1961 – 31. desember 1961
ForsætisráðherraÓlafur Thors
ForveriBjarni Benediktsson
EftirmaðurBjarni Benediktsson
Í embætti
14. nóvember 1963 – 10. október 1970
ForsætisráðherraBjarni Benediktsson
ForveriBjarni Benediktsson
EftirmaðurAuður Auðuns
Formaður Sjálfstæðisflokksins
Í embætti
10. júlí 1970 – 12. október 1973
ForveriBjarni Benediktsson
EftirmaðurGeir Hallgrímsson
Alþingismaður
frá til  kjördæmi    þingflokkur
1946 1978  Reykjavík  Sjálfstæðisfl.
Persónulegar upplýsingar
Fæddur19. september 1915
Akureyri, Íslandi
Látinn15. maí 1980 (64 ára)
StjórnmálaflokkurSjálfstæðisflokkurinn
MakiRagnheiður Thors (g. 1938)
Börn3
FaðirJúlíus Havsteen
HáskóliHáskóli Íslands
Æviágrip á vef Alþingis

Jóhann Hafstein (19. september 191515. maí 1980) var formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra Íslands.

Hann var fæddur á Akureyri, sonur Júlíusar Havsteens, síðar sýslumanns, og Þórunnar Jónsdóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1934 og lagaprófi frá Háskóla Íslands 1938, ásamt því að sinna starfi sem formaður Stúdentaráðs háskólans. Stundaði hann síðan framhaldsnám í þjóðarétti við Lundúnaháskóla og í Danmörku og Þýskalandi fram á haust 1939.

Jóhann kvæntist 1938 Ragnheiði Thors, dóttur Hauks Thors (bróður Ólafs Thors forsætisráðherra) og Soffíu Hafstein (dóttur Hannesar Hafstein ráðherra) og áttu þau þrjá syni, Hauk, Jóhann Júlíus og Pétur.

Stjórnmálaferill

Árið 1935 stofnaði Jóhann Vöku, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, og var fyrsti formaður þess. Árið 1939 varð hann erindreki Sjálfstæðisflokksins og seinna framkvæmdastjóri hans 1942. Hann var formaður Heimdallar á árunum 1939 til 1942. Þá var hann einnig formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík 1943-1955.

Jóhann sat á þingi fyrir Reykjavík 1946-1978. Hann gerðist bankastjóri Útvegsbankans 1952 en varð iðnaðar- og dómsmálaráðherra 1963. Hann var kjörinn varaformaður Sjálfstæðisflokksins 1965 og tók við formennsku flokksins og embætti forsætisráðherra eftir fráfall Bjarna Benediktssonar 1970 jafnframt því að gegna áfram embætti iðnaðarráðherra.

Eftir að viðreisnarstjórnin missti meirihluta sinn 1971 gerðist Jóhann leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Haustið 1973 sagði hann af sér formennsku vegna heilsubrests.

Ritgerðasafn hans, Þjóðmálaþættir, kom út 1976.

Jóhann Hafstein lést eftir langvarandi veikindi, þann 15. maí 1980.

Heimildir

  • Æviágrip á vef Alþingis
  • Hannes Hólmsteinn Gissurarson (1989). Sjálfstæðisflokkurinn í sextíu ár. Sjálfstæðisflokkurinn.


Fyrirrennari:
Gunnar Thoroddsen
Formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna
(19431949)
Eftirmaður:
Magnús Jónsson frá Mel
Fyrirrennari:
Bjarni Benediktsson
Forsætisráðherra
(10. júlí 197014. júlí 1971)
Eftirmaður:
Ólafur Jóhannesson
Fyrirrennari:
Bjarni Benediktsson
Formaður Sjálfstæðisflokksins
(10. júlí 197012. október 1973)
Eftirmaður:
Geir Hallgrímsson
Fyrirrennari:
Gunnar Thoroddsen
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins
(24. apríl 196510. júlí 1970)
Eftirmaður:
Geir Hallgrímsson


Prefix: a b c d e f g h i j k l m n o p q r s t u v w x y z 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9

Portal di Ensiklopedia Dunia

Kembali kehalaman sebelumnya