Kristín Vídalín JacobsonKristín Vídalín Jacobson (fædd 10. febrúar 1864, dáin 6. maí 1943) var íslensk myndlistarkona og fyrsti formaður Kvenfélagsins Hringsins. Foreldrar Kristínar voru hjónin Páll Vídalín alþingismaður (1827-1873) og kona hans Elínborg Friðriksdóttir Vídalín (1833-1918). Eiginmaður Kristínar var Jón Jacobson alþingismaður og landsbókavörður og eignuðust þau fjögur börn.[1] Kristín er talin vera fyrsta íslenska konan sem stundaði nám í málaralist en hún nam við Kvennaakademíuna í Kaupmannahöfn 1890-92.[2] Á námsárum sínum veiktist hún af berklum og hét því í kjölfarið að hún skyldi beita sér fyrir bættum hag fátækra berklasjúklinga. Síðar beitti hún sér fyrir stofnun Kvenfélagsins Hringsins en félagið var stofnað 26. janúar 1904 en í upphafi var markmið félagsins að bæta hag berklasjúklinga. Kristín var formaður Hringsins í 39 ár eða til ársins 1943. Árið 1942 var Kristín sæmd stórriddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu.[3] Tilvísanir
|