LjóðahátturLjóðaháttur (að fornu: ljóðaháttr) er bragarháttur sem sjá má í sumum Eddukvæðum, t.d. Hávamálum. Einnig í Sólarljóðum. Í vísum undir Ljóðahætti eru yfirleitt sex vísuorð eða hendingar (línur), og er fyrri helmingur vísunnar (1.-3. hending) eins að bragformi og sá seinni (4.-6. hending). Stuðlasetning bindur fyrstu tvær hendingarnar saman, síðan eru tveir stuðlar í þeirri þriðju, sbr. feitletrun. Þetta er svo endurtekið í seinni helmingi vísunnar.
Ljóðaháttur er oft notaður til að koma á framfæri lífsspeki, og er stundum leikið með andstæður í fyrri og seinni helmingi vísnanna. Hér er t.d. bent á forgengileika líkamans í fyrri vísuhelmingi, og ódauðleika orðstírsins í þeim seinni. Flestir kannast við seinni hluta eftirfarandi vísu, sem er sú næstsíðasta í Sólarljóðum:
Í ljóðahætti er ekkert rím, hvorki innrím né endarím. Heimild
|