Matthew Gray Gubler
Matthew Gray Gubler (fæddur 9. mars 1980) er bandarískur leikari og leikstjóri sem er þekktastur fyrir hlutverk sín í Criminal Minds og Alvin and the Chipmunks kvikmyndunum. EinkalífGubler er fæddur og uppalinn í Las Vegas í Nevada. Sem menntaskólanemi þá stundaði Gubler nám við Las Vegas Academy of International Studies, Performing and Visual Arts þar sem hann lærði leiklist, þrátt fyrir að skólinn kenndi ekki kvikmyndagerð sem er aðaláhugamál Gublers.[1] Gubler stundaði nám við Tisch School of the Arts við New-York-háskólann í kvikmyndaleikstjórn. Gubler vann sem módel fyrir Tommy Hilfiger, Burberry, Louis Vuitton og Marc Jacobs á meðan hann var við nám í New York. Var boðið starfsnám hjá leikstjóranum Wes Anderson, sem sagði Gubler að fara í áheyrnarpróf fyrir hlutverk í myndinni The Life Aquatic with Steve Zissou sem Gubler fékk.[2] LeikstjóriGubler leikstýrði stuttmyndunum Claude: A Symphony of Horror og The Cactus That Looked Just Like a Man. Gubler leikstýrði og skrifaði handritið að grínstuttmyndunum Matthew Gray Gubler: The Unauthorized Documentary og The Authorized Documentary sem hann gerði á tökustað Criminal Minds. Gubler hefur leikstýrt tveim þáttum af Criminal Minds.[3] FerillSjónvarpFyrsta hlutverk Gublers í sjónvarpi var í Arrested Development. Gubler hefur síðan 2005 leikið eitt af aðalhlutverkunum í Criminal Minds sem Dr. Spencer Reid. KvikmyndirFyrsta hlutverk Gublers í kvikmyndum var í The Life Aquatic with Steve Zissou síðan 2004. Síðan þá hefur hann komið fram í kvikmyndum á borð við Alvin and the Chipmunks, How to Be a Serial Killer, (500) Days of Summer og Pornstar. Kvikmyndir og sjónvarp
Leikstjórn
Tilvísanir
Heimildir
TenglarWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Matthew Gray Gubler. |