Tacoma Narrows-brúin (1940)
Upprunalega Tacoma Narrows-brúin var opnuð 1. júlí 1940 og hrundi 7. nóvember sama ár. Brúin er einnig þekkt sem Galloping Gertie vegna sterkra vinda á svæðinu. Hengibrúin spannaði Tacoma Narrows-sund á milli Tacoma og Kitsap-skaga í Washingtonfylki í Bandaríkjunum. Önnur brú var byggð sem arftaki hennar á sama stað árið 1950 og árið 2007 var sú nýjasta reist samhliða hinni. Hrun brúarinnar hafði varanleg áhrif á vísindi og verkfræði. Ófáar kennslubækur í eðlisfræði skýra frá atburðinum sem afbragðs dæmi um neydda hljómun þar sem vindurinn veitti lotubundna tíðni sem jafngilti eigintíðni brúarinnar. Hrunið leiddi einnig til aukinna rannsókna á vængsniðum brúa með tilliti til loftstreymis, en þær rannsóknir höfðu mikil áhrif á hengibrúarsmíði eftir 1940. Á þeim stutta tíma sem brúin stóð uppi var hún þriðja lengsta hengibrú heims, á eftir Golden Gate-brúnni og George Washington-brúnni.
Tenglar |