Alain Poher
Alain Poher (17. apríl 1909 – 9. desember 1996) var franskur stjórnmálamaður sem gegndi tvisvar forsetaembætti Frakklands til bráðabirgða. Poher var meðlimur í Alþýðlegu lýðveldishreyfingunni (fr. Mouvement républicain populaire eða MRP). Hann var kjörinn á franska þingið árið 1946 og síðan nefndur fjármálaráðherra í ríkisstjórn Roberts Schuman og síðan útgjaldaráðherra í stjórn Henris Queuille. Poher var návinur Roberts Schuman og gegndi ýmsum störfum á þingi áður en hann varð forseti Evrópuþingsins árið 1966 og forseti franska þingsins frá 1968 til 1992. Það var í krafti þess embættis sem Poher settist tvisvar til bráðabirgða á forsetastól Frakklands: Fyrst eftir afsögn Charles de Gaulle forseta (1969) og síðan eftir dauða Georges Pompidou forseta (1974). Poher hafði boðið sig fram í forsetakosningunum gegn Pompidou árið 1969 en hafði beðið ósigur í annarri umferð kosninganna. Poher var einn þekktasti þingmaður fimmta franska lýðveldisins og er enn í dag sá sem lengst hefur setið sem forseti franska þingsins. Heimild
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Alain Poher. |